Hér er farið í hringi mjög reglulega …
stundum er poppað á gamlamátann í potti, ljúffengt poppkorn en því fylgir kvöð sem er að þrífa pottinn! fita og leiðindi *bjakk*
stundum tökum við hollustuna á þetta og notum fínu loftpoppkornsvélina okkar… engin fita sem þarf að þrífa og mun bragðlausara poppkorn – vantar náttrúlega fituna!
og þess á milli er letin við völd, óhollustan og svo framvegis og popsecret kassinn er dreginn fram, pokinn rifinn úr kassanum og skellt í öbbann og voilá stuttu síðar fínasta poppkorn komið í skálina…