þetta kvef mitt er orðið annsi þrálátt…
eða er ég bara orðin svona þreytt á því að svara fólkinu sem kemur hingað til mín í vinnuna að ég sé búin að leita læknis og að læknirinn hafi ekkert fundið að mér, bara skrifað upp á einhverja hóstamixtúru og búið mál…
jæja ég veit allavegana að það er ekki séns á að ég fari í BC í kvöld..
ég á ekki annað eftir en að vera hóstandi allan tímann þannig að það myndi nú ekki gera mikið fyrir mig að láta sjá mig í þeim tímum…
aftur á móti er ég að spá í að fara frekar bara út í Þrekhús og fá mér góðan göngutúr þar eða þá í Baðhúsið og fá mér góðan göngutúr þar heheh vá 2 valmöguleikar á göngutúrum *jeij* eiginlega þrír en ég nenni nú enganveginn að keyra upp í ópavog í sporthúsið.