Auður sem vann með Leifi á Búðarhálsi kíkti í heimsókn með PS3 tölvuna sína í kvöld… ekki frásögu færandi svosem nema afþví að Oliver var svo yfirsig spenntur að pabbi og Auður ætluðu að spila tölvuleik í stóra sjónvarpinu! Ása Júlía gerði sitt besta til að halda sér vakandi eitthvað en bæði voru þau steinsofnuð áður en leikurinn hófst. Ekki það að þetta var enginn tölvuleikur fyrir börn svosem 😉 En rifjaði upp skemmtilegar stundir hjá þeim tveim á meðan þau voru á Hálsinum.
Samt svolítið fyndið hvað þau voru öll 3 spennt fyrir þessu, þ.e. Leifur, Oliver og Ása Júlía.