úff… ég var að skoða síðuna hjá Esther og þar sé ég link ( sem hún btw kallar kjánalegan sem hann er ) Ísland fyrir Íslendinga… alltílæ smelli á hann og þar kemur upp síða, rasistasíða, Félag íslenskra þjóðernissinna. aníhow þeir eru með þar svokallaðan svartan lista en það er listi yfir fyrirtæki sem hafa ráðið erlent vinnuafl og skv. því sem haldið er fram á síðunni umfram íslenskt…. mig langar nú að benda á það að í mörgum tilfellum þá ráða ísl. fyrirtæki útlendinga vegna þess að við erum svo pikkí að við viljum ekki vinna við þetta eða hitt… plús það að mjög mörg þessara starfa eru láglaunastörf.. annars þá er mér nett sama 😛 bara þoliggi svona rasisma! EN ég er samt smá rasisti því að mér finnst eiginlega algert lámark að afgreiðslufólk tali & skilji íslensku… og ég veit að það eru fleiri sammála mér með það.