Mömmu og pabba áskotnaðist forláta gæruskinns kerrupoki fyrir mörgum árum (eftir að ég var vaxin upp úr svona nokk samt). Mörg kríli í fjölskyldnni hafa fengið að njóta hans og þegar Oliver fæddist var það auðvitað gefið mál að hann kæmi til okkar 😉 semsagt Oliver, Ása Júlía og núna Sigurborg Ásta hafa kúrt í þessum poka. Mér finnst hann svo frábær í alla staði, ég þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að þeim sé of kalt þar sem þau hafa aldrei komið köld inn úr vagninum (nema auðvitað á nebbaling). Þarf ekki heldur að kappklæða þau 😉