við fórum ásamt tengdó og Gunnari & Evu og strákunum út að borða í kvöld í tilefni afmælis Skúla á morgun. Voða sport hjá krökkunum að fá að velja sér hvað sem þau vildu af matseðlinum – eða svona allt að því.
Við héldum okkur öll við hamborgara enda stödd á Hamborgarafabrikkunni 🙂 Mismatarmiklir borgarar á borðum en allir matarmiklir samt 🙂
Krakkarnir fengu svo öll hamborgaramuffins í desert í boði hússins og Skúli fékk afmælisís ásamt lagavali “æj bara eitthvað með Ásgeiri Trausta” svona fyrst það þurfti að vera íslenskt 😉