Ég rakst á komment um vin minn í gær á bloggi sem ég kíki stundum á, reyndar er hann meira en vinur þar sem við áttum saman rétt rúm 2 ár.
Þetta komment var verulega ljótt og benti ég viðkomandi á það í commentakerfinu, ég á nú ekki von á því að bloggarinn taki það neitt til sín en æj mér þykir þetta bara hreinasta óþarfi sem sagt var.
nei ég ætla ekki að linka á þetta blogg því að mér þykir það óþarfi.
aRg aníhú ég er svo meir að ég vil ekki sjá svona um fólk sem mér þykir vænt um.
Blöh ég varð bara að koma þessu frá mér!