Ég fór í afmælið til Kollu í gær og það var nóg af fólki… ég og Lilja kíktum saman þangað.
þetta var voða fínt, langt síðan mar hefur séð Kollu og svona.. Annars þá þekkti ég ekkert svo rosalega marga þarna en jú Diljá var þarna & Svanhvít vinkona hennar og svo fékk ég loksins að sjá kúluna hennar Urðar!!! og mynd til sönnunar þess!!!! ( sjá neðst )
Ragga vinkona Lilju kom svo þegar líða fór á kvöldið og svo var ákveðið að kíkja á hálfgert EDRÚ djamm og eyða hellst 0kr röltum fyrst niðrá NASA því að við héldum endilega að þeir byrjuðu ekki að rukka inn fyrr en kl 12 en nei þeir opna kl 11 og byrja þá STRAX að rukka 1000 kall inn takk fyrir!! við sleppa því og röltum því næst upp á Hverfisbar. það var fínt mikið af fullu fólki og svona… stálumst til að setjast hjá einhverjum stráka hópi og enduðum með því að þeir fóru allir við so leiðinlegar edrúmanneskjur hahahah segji svona þeir fóru að dansa og báðu okkur að passa eitthvað drasl sem við gerðum reyndar aldrei *ehem* við so skemmtilegarrrrrrrrrrr aníhow… ég ákvað um rúmlega 1 að ég nennti ekki að hangsa í endalausum reyk og fá sviða í augun boring!! aníhow við skemmtum okkur alveg konunglega að fylgjast með fólkinu og sjá alla pissfulla og furðulega.
gærkveldið ss komið á blað!!! ásamt nokkrum myndum úr afmælinu hennar Kollu.. ég nennti eiginlega ekki að taka myndir en þær eru örfáar þarna.