eins og það getur stundum verið voða þægilegt að fólk rati á allt hérna og
kunni á það hvernig hlutirnir virka þá getur það líka verið einkar óþægilegt þegar
fólk lætur eins og það sé heimahjá sér.
dæmi 1
Kona ein mætti hérna með þvottinn sinn því að þvottavélin hennar var biluð,
ætlaðist til þess að þvo þvottinn sinn hérna á meðan hún væri í meðferð *blöh*
dæmi 2
einstaklingur gengur inn á skrifstofuna til þjálfaranna eins og viðkomanda sýnist,
notar símann þar þegar honum henntar og svo frv. Þess má geta að inn á
skrifstofu eru fullt af gögnum sem tilheyra sjúklingum og viðkomandi á ekkert með
að sjá.