er titillinn sem Leifur fékk í dag 😉
Í tilefni þess grilluðum við dýrindis nautasteik (piparkrydduð en ekki hvað) útbjuggum dásemdar piparostasósu með slettu af viskí-i, grillaðar kartöflur ásamt grilluðum ferskum maís og auðvitað ferskt salat með – þvílíkt nammi!!
Borðuðum líka öll 4 á okkur gat, svo stórt að við höfðum takmarkaðan áhuga á desert sem fær því bara bíða þar til helgin gengur í garð… ekki verra að eiga hann inni 😉