Við kíktum í mat í Ossabæ í dag en Inga og Skúli voru þar yfir helgina.
Oliver naut sín alveg í botn að ná í “sýni” til að skoða í nýju “smásjánni” sem hann fékk í afmælisgjöf frá Vali Kára. Ótrúlegustu hlutir voru skoðaðir, allt frá regnvatni til lopa og allt jafn spennandi að sjá. Ása Júlía sýndi alla tilburði til að gera eins en gekk ekki alveg jafn vel að fókusa í þetta litla gat 🙂