Ég og krakkarnir erum heima núna eftir hádegið í þessu dásemdar veðri innanum kassa og annað dót tilbúið til flutnings. Leiðindarveður að setja strik í reikninginn þannig að Föstudagur til frægðar? og K48 bara í blússandi lukku í framhaldi af því ? Planið var nefnilega að flytja í dag. Ég er búin að vera að taka myndir á símann síðustu daga og er að setja þær saman í eina færslu. Reyndar engar framkvæmdamyndir… meira bara Hvassaleitið kvatt.
Segi nú bara sem betur fer þá er ég búin að vera að vinna mér í haginn og held því áfram í dag sem þýðir þá auðvitað aðeins minna stress á morgun en nóg verður það samt!