hin raddlausa ég og Leifur mættum í Remax kl 1330 í dag og hittum þar fasteignasalann og kaupandann að H14 skiptumst á nokkrum undiskriftum, brosum, handatökum og kurteisiskveðjum rétt áður en við hittum fólkið sem er að selja okkur K48 og endurtókum þar leikinn 🙂
Ég held barasta að ég hafi aldrei skrifað nafnið mitt svona oft á stuttum tíma!
Við fáum bílskúrinn afhentan á morgun eða annað kvöld, áttum að fá allt húsið en smá ves í gangi þannig að bílskúrinn kemur fyrstur í okkar hendur og við ætlum að fara að skuttlast með kassaflóðið héðan. Án gríns, það flæðir allt hérna í kössum. Við fáum svo húsið afhent á mánudaginn í kringum hádegið. Spennandi allt saman 🙂
Til hamingju með áfangann. Þið hringið í mig varðandi aðstoð með flutninga.