ég fór á Les Misérables með Krúsu og Söru síðastl. sunnudagskvöld
Smá ævintýri þar sem ég og Sara höfðum verið forsjálar og keypt miða á netinu en ekki Krúsa… uppselt var á myndina þegar Krúsa kom en þetta rættist þar sem við rákumst á konu sem hafði lent í svipuðu… eða þ.e. hún hafði keypt miðann sinn en var að bíða eftir vinkonu og í ljós kom að vinkonan var miðalaus þannig að við keyptum bara miðann af konunni og fórum svo í bíó ;-p
Myndin sjálf var rosalega flott… ótrúlegt hvað Hugh Jackman náði að gera sig óþekkjanlegan í byrjun (horast + skegg), við þekktum hann ekki til að byrja með.