Við skötuhjúin skelltum okkur á þorrablót á laugardaginn í Iðnó á vegum vinnunar hans Leifs.
Stórskemmtilegt kvöld þar sem mikið var hlegið og spjallað að vanda enda stórskemmtilegur hópur sem mætir á ca 80% viðburðanna hjá þessum systurfyrirtækjum. Eftir matinn fórum við upp á 3ju hæð þar sem við fengum “betristofuna” alveg út af fyrir okkur en á neðri hæðinni var svaka grímupartý.
Við ásamt Þóru + Björgvin, Lolli og “nýja gaurnum” ákváðum að rölta aðeins yfir á næsta skemmtistað eftir að allir hinir fóru heim.
Ég held ég hafi sagt þetta milljón sinnum… ég er ekki miðbæjardjammari 😉 that’s for sure 🙂 en kvöldið var samt frábært 🙂