Ég var ofsalega hrifin af uglupeysunum sem ég prjónaði á Ásu Júlíu og Ingibjörgu fyrir jólin þannig að ég ákvað að gera eina til viðbótar í afmælisgjöf fyrir Sigurlaugu 🙂 Þessi peysa er nokkuð fljótprjónuð og ég er mjög sátt við útkomuna 🙂 hlakka til að sjá hvernig hún kemur út á skottunni. Ég stækkaði hana um 1 uglumunstur, stæðsta stærðin var gefin upp með 16 uglur en ég fjölgaði lykkjunum þannig að þær eru 17 á þessari peysu.