obbobobobbbb ég var að skoða hvernig dagatalið okkar lítur út þessa dagana – hálf brá þegar ég áttaði mig á því hvernig allt lítur út.
Oliver er náttrúlega komin á fullt bæði í fótbolta og sundi (sem hann ætlar sko bæði að æfa þar tl hann verður fullorðinn, og eitthvað meira líka – sjáum nú til með það…)
Ása Júlía ætlar að prufa að fara í Dans og sund núna eftir áramótin.
Svo erum við Leifur eitthvað að reyna að gera af okkur, bæði fyrir okkur sjálf í sitthvoru lagi sem og saman. Þetta verður eitthvað…og á bara eftir að versna í framtíðinni :-p
En vá hvað ég elska GOOGLE calender og að geta haft það í símanum er bara snilld! Við Leifur bæði með aðgang að sömu dagatölunum og svo bæði með þetta allt á sama stað í símunum okkar. Ekkert ves 🙂
svo bættist reyndar þarna inní matarplan mánaðarins og í haust byrjar að detta inn heimalærdómur hjá Oliver ;-p