jæja það fer ss að líða að því að ég sting af úr landi
í smá tíma… bara gaman að því!! vildi samt óska þess
að ég gæti verið lengur en þessar 4 nætur *heheh*
ég er semsagt að fara að prinsessast í Danaveldi í nokkra
daga.. jamm ekta prinsessu stælar í gangi því að gömlu
hjónin ætla að vera svo yndisleg að bjóða prinsessunni
sinni með sér út… =)
Við förum semsagt á morgun föstudag og komum heim
aftur a þriðjudag í næstu viku… fáum 3 heila daga í að
skoða Köben og svona… bara næs =)
Það eina sem er pottþétt á planinu er að fara í Tivolí einhvern
daginn og vera þar eflaust megnið af deginum ef ekki allan…
ætli við komum ekki öll sárfætt heim.. ég yrði allavegana ekki
hissa á því =)