Ég fann svo dásamlegt garn í litlu prjónabúðinni um daginn… alveg svakalega létt og fínt og ég mátti til með að gera eitthvað skemmtilegt úr því.
Úr varð teppi fyrir væntanlega Þorbjarnardóttur. Bring it on baby blanket er virkilega fallegt teppi og ekki skemmir hvað það er fljótlegt.
Eftir á að hyggja hefði ég átt að vera með garnið 2 fallt en það er samt fallegt og létt í sér. Ég hafði það einlitt þar sem ég fann í raun engan lit sem mér fannst passa við og sömuleiðis langaði mig að prufa að gera þetta teppi einlitt.