ég hef ekki verið í neinu babl stuði í dag…
Fanney vinkona var hérna í sjúkriaþjálfun í morgun og ég var frekar leiðinleg við hana því að ég hafði hvorki tíma né var í stuði til að tala við einn né neinn um hin ýmsu málefni. aðalbosssinn var nefninlega bara að vinna til hádegis í dag og verður ekkert næstu viku þannig að ákveðið var að hann myndi gera upp mánuðinn og senda til TR þannig að það var nóg að gera í morgun… yfirfara hans fólk og bæta inn tímum, breyta tímum, setja inn skoðanagjöld, breyta í bráðameðferð setja inn slysanr og dagsetningar… geðveikt gaman!!
Ég vona að ég eigi ekki eftir að þurfa að hafa NEIN samskipti við TR fyrir utan barnabæturnar þegar þar að kemur..