Ég átti afgang af Cascade Yarns Heritage Silk garninu sem ég notaði í uglupeysur á Ásu Júlíu og Ingibjörgu sem mig langaði að klára… úr varð þessi kragi sem er afskaplega hlýr og þægilegur.
Skemmtilegt munstur sem ég gæti alveg hugsað mér að nota aftur í eitthvað annað… gæti reyndar líka alveg hugsað mér að gera þennan kraga aftur úr einhverju öðru garni, þá þyngra og meira “chunky” en þessi passar reyndar ágætlega á okkur báðar mæðgurnar 🙂