mikið svakalega hef ég verið léleg við þetta undanfarna daga…
það hjálpar auðvitað ekki að það er brjálað að gera í vinnunni og svo er búið að taka tölvuna heima í uppfærslu og eitthvað fleira skemmtilegt… kemur allt saman í ljós…
ég er búin að rekast á ýmislegt, þar sem ég hef hugsað með mér “ah ég ætti að tjá mig um þetta á bloggnum” en allt kemur fyrir ekki… ég gleymi þessu strax..
ég rakst á síðu núna um daginn þar sem boðið er upp á símablogg en ég er sko alls ekki tilbúin til þess að borga 3þ kall á ári fyrir það að geta sent inn sms með hugdettum… frekar fæ ég mér litla bók og penna til að hafa í veskinu og skrifa hjá mér minnispunkta…
ah ég er farin heim.. á að vera löngu búin að vinna…heim að kúra upp í fína rúminu mínu með hlýju góðu sængina mína spurning um að koma við út í bónusvideo…..