þetta er búin að vera meiri helgin…
vægast sagt ömurleg! ég er búin að vera með hálsbólgu og kvef fór heim úr vinnu á föstudaginn með massívan höfuðverk og pirring… sem leiddi þetta svo af sér iff piff…
Reyndar fór ég í afmælispartý til Jóns frænda í gær..hann varð 50 ára þann 1 okt og hélt svona svaka partý á Players í gærkveldi… (myndir væntanlegar…) fór þaðan samt um 11 leitið var ekki alveg að höndla hávaðan og allt ruglið… fulla ættingja og svona *gamangaman* það er svosem í fínu lagi þegar mar sjálfur er í stuði *heh*
En það var voða gaman að hitta fólkið.. þá sérstaklega Guðbjörgu frænku og Vigni manninn hennar… mar sér þau nú ekkert alltof oft enda þau búsett í Danaveldi og komu bara til landsins í tilefni þess að frændi varð 50 ára =)
jæja ég ætla að fara að gera e-ð af viti.. kannski skila því sem ég tók á leigu í gær…
alveg spuring!