ég hata það að hafa eitthvað í hausnum og geta ekki talað um það við neinn…því að málið snertir of marga og særandi… *pirr* eða nei ekki beint særandi eiginlega bara ekkert særandi heldur bara öllum öðrum óviðkomandi en mig langar samt að tjá mig *heheh*
aníhow… ég fór á flakk með Liljunni minni í fyrradag.. við vorum báðar alveg í þeim gír í allan daginn að langa að fara bara beint heim og upp í rúm að sofa.. við erum kostulegar..kiktum í vefnaðarvöruverslunina í Grímsbæ og þar fann ég LOKSINS svona mynd sem ég er tilbúin til að gera handa krílinu hans Fannars frænda. þetta er svona útsaumsmynd til að hengja upp á vegg og á myndinni kemur fram nafn, fæðingardagur, þyngd og lengd við fæðingu… svo er þetta líka svona uppskrift sem er hægt að eiga og gera aftur og aftur því þetta er svona “unisex” og ekkert sem segjir þetta er bara fyrir strák/stelpu…
þannig að Dagný litla er komin á fullt að sauma út því að krílið hans frænda á að mæta í heiminn eftir mánuð og þá er allavegana skemmtilegra að vera búin með þetta. ég keypti reyndar annað svona því að ég veit af öðru kríli sem er líka á leiðinni… ég þarf samt ekkert að setja það í gang á næstunni