Við fórum í sumarbústað um helgina ásamt systkinum Leifs og fjölskyldum þeirra… ótrúlegt að við erum orðin 12!! Á aðeins 6 árum hefur hópurinn 2faldast 🙂
Sigurborg, Tobbi og Ingibjörg deildu SFR bústað með okkur en Gunnar, Eva og strákarnir voru í FÍF bústað við hliðiná okkur. Bara sniðugt!
Þetta var frábær helgi sem einkenndist af góðum mat og félagsskap, krakkarnir nutu sín að hlaupa á milli bústaða, skoða norðurljósin úr heitapottinum, borða, borða aðeins meira og finna skrímsli í skóginum milli húsana!! Við skelltum okkur líka á Sauðamessu í Borgarnesi… krökkunum (tja þeim eldri) fannst ekki leiðinlegt að vera í svona miklu návígi við rollurnar 😉
Hér er smá preview af myndum… aðrar koma einhverntíma inn á inni á FOTKI síðunni