ég er alveg að tapa mér hérna….
Málið er að ég er alltaf sama dúttlkellan…
Tók upp útsaumsdót í gær sem ég hafði verið að hvíla mig á… varð eitthvað pirruð á því um daginn. Nema hvað á meðan ég var að bíða eftir myndunum mínum í gær þá var ég að rölta um Kringluna og svona og fer inn í pennann og rekst þar á blað sem er eitthvað um svona útsaum með alveg sko slatta af munstrum og svona allskonar dóti og svo er heil síða í blaðinu með linkum á svona útsaumssíður á netinu… og ég er orðin þokkalega veik!!!!