Ég skellti mér með krakkana að sjá Stígvélaða köttinn með leikhópnum Lottu núna á fimmtudaginn 🙂
Stórskemmtileg sýning og gaman að fara í svona “öðruvísi” leikhús með engum sætum og skemmtilegri picknick stemmningu!
Eftir sýninguna fengu krakkarnir svo að heilsa upp á Fríðu Prinsessu og Ara “greifa”, Stígvélaða köttinn (sem tæplega 3 ára stelpuskott voru ekki alveg að gúddera) og líka Hans Hátign en eitthvað fannst krökkunum hann “of” skrítinn þannig að hvorugt vildi heilsa upp á hann..