Þetta fannst syninum ótrúlega spennandi og dótturinni reyndar líka 🙂
Það var semsagt verið að grafa upp og skipta um jarðveg á hluta af “óræktinni” þarna úti í garði í gær … og þá voru svona tæki í garðinum…
Krökkunum í húsinu fannst reyndar hálfgert svindl að þeir settu ekki rólurnar strax í og að það væri eitthvað band fast þarna á rennibrautinni en því var öllu reddað strax í hádeginu í dag 🙂