Við hittum hluta af vinahópnum hans Leifs í Grenilundi í Heiðmörk í góða veðrinu í dag.
Óli, Guðrún og Jóhanna Lovísa komu um svipað leiti og við en Inga Lára, Jökull, Sigurlaug og Eyþór Karl komu svolítið síðar.
Pylsur fengu snúning á grillinu, sem og nokkrir borgarar, boltar fengu á sig spark og spítukubbum var kastað… Oliver var krýndur Kubbmeistarinn enda virtist hann hafa besta valdið á þessum leik þótt ótrúlegt megi virðast.
Skemmtilegur dagur með góðu fólki 🙂
Leiðinlegt að missa af grillinu, en við vorum auðvitað að flytja þennan daginn.
Við verðum bara að endurtaka þetta næsta sumar… þá verða Rebekka, Hákon Þorri og Sigurlaug líka orðin stærri og geta tekið meiri þátt 🙂
Annars þá vantaði líka Iðunni & Sverri 🙂