Við kíktum í Grímsnesið í bústaðinn hjá Eddu og Rögnvaldi á föstudag beint eftir vinnu. Þar voru Gísli og Stine með smá kveðjugrill þar sem þau héldu heim á leið til Sviss morguninn eftir.
Gunnar, Eva Mjöll og strákarnir voru þarna líka, sem og Edda Kata, Magga, Ingvi og Arnkatla Edda þannig að það vantaði ekki fjörið 🙂
Þarna var mikið ævintýraland fyrir krakkana og nutu þau sín alveg út í eitt. Voru ekki lengi að detta út þegar við lögðum af stað heim löngu eftir þeirra háttatíma 🙂