Við tókum okkur til í gær og náðum í svalaflísarnar sem við höfðum keypt fyrir ca ári síðan til að setja á svalirnar okkar… auðvitað varð ekkert úr því í fyrra þar sem það voru svo yndislega skemmtilegir stillansar fyrir svölunum í ALLT síðasta sumar!
Allavegana þá bárum við á þær í gær og sáum svona ca út hvernig við þyrftum að saga þær til svo að þær pössuðu á svalirnar. Hlakka bara til þegar við verðum búin að setja þær á þar sem svalagólfið er svo FLUGhált ef það er minnsta bleyta á því núna…
Mér finnst koma svo vel út að setja svona á svalir, gerir þær aðeins notalegri og lífgar upp á :Þ
alveg sammála þér 🙂
svo eru þær bara skemmtilegri svona 😉