Við skötuhjúin skelltum okkur í bíó síðast liðið laugardagskvöld.. veit ekki hvað það er langt síðan síðast en þannig er það bara 🙂
Sáum semsagt Svartur á leik eftir Stefán Mána. Mikið svakalega var þetta ljót mynd *hrollur* en góð var hún, það er alveg á tæru! Langt síðan maður hefur séð svona vel leikna íslenska mynd… nokkurnvegin alveg laus við allan svona tilgerðarlegan leik.