ég var að skoða pjattrófurnar á dv.is, nánartiltekið pistlana hennar Sigrúnar Þallar og hún talar þar um svona “inspiration board” ég er mikið að spá í að gera svona “borð” eða bara mynd fyrir mig… þó það væri ekki nema til þess að hafa fyrir framan mig í vinnunni til að minna mig á skemmtilega og góða hluti í lífinu. Ég er auðvitað með myndir af krökkunum þar *hmm sem ég þarf að fara að endurnýja!*
Svo er hægt að nýta þetta á ýmsa vegu, mæli með google leit á inspiration board 🙂
Þetta er mjög skemmtileg hugmynd, það væri gaman að sjá hvort það komi Legokubbar fyrir á myndinni hans Leifs !
haha ég yrði ekki hissa á því!!
Sniðugt 🙂