eftir nákvæmlega sólarhing verðum við skötuhjúin um það bil að lenda í Keflavíkinni, nánar til tekið í Leifsstöð á leið til New York. Get ekki annað sagt en að ég sé farin að fá smá fiðrildi í magan og tilhlökkunin farin að stigmagnast.
Komast í smá frí héðan af klakanum bara ein með kallinum er voðalega ljúf tilhugsun. Börnin verða í góðum höndum hjá ömmum og öfum og njóta þess pottþétt í botn 🙂
Hlakka svooo til að fá amerískt jólaæði beint í æð!!