Ég fékk vinkonurnar í heimsókn í gær og var bara í ruglinu í hádeginu með hvað ég ætti að bjóða þeim upp á… datt inn á Pinterest síðuna og skoðaði “matar” dálkinn þar… OMG hugmyndasúpa í gangi þar… Ég allavegana datt þar inn á það sem kallað var “fruit pizza” sem er í raun (tja þessi útgáfa sem ég valdi) bara brownies með rjómaostakremi og berjum *nammi*
Ég keypti bara classískt Betty Crocker brownie mix, blandaði og smurði svo deiginu í einhverskonar hring á bökunarpappír og svo inn í ofn. skar svo niður jarðaber, banana, vínber og mixaði þeim saman ásamt bláberjum. útbjó rjómaostakrem með smá vanillu og sykurslettu og smurði á kökuna þegar hún var orðin köld og berjabananablöndunni þar yfir og inn í ísskáp þar til dömurnar mættu. Ekkert smá sniðugt og bara gott 🙂 ekki of sætt þótt ótrúlega megi virðast 🙂
Klikkaði algerlega á að taka mynd af herlegheitunum en þessi er af pinterest síðunni og er með jarðaberjum, hindberjum og bláberjum 🙂
Source: bettycrocker.com via Dagný on Pinterest