Síðasta laugardag tókum við okkur nokkrar til og gæsuðum Iðunni vinkonu 🙂
Smá sprell, notalegheit, frábær kvöldmatur, pakkaleikur, desert, singstar, Hermundur Rósinkrans og svo auðvitað spjall og meira spjall.
Ég var reyndar voðalega saklaus, var bara í vatninu og sá jú um öhh ekki saklausa desertinn [linkur á mynd].
Pakkaleikurinn snérist um að hver og ein vinkona/frænka átti að koma með smá gjöf sem átti að hafa tengingu eða minna á vináttuna og gæsin svo að giska á hver hefði komið með hverja gjöf, ég skellti í appelsínutrufflur enda gerði ég þær í fyrsta sinn með Iðunni &Lindu Rós fyrir jólin 2004.
Í heild hress og skemmtilegur dagur/kvöld 🙂