Við skötuhjúin skelltum okkur í brúðkaup um helgina 🙂
Rosalega fallegt og yndislegt í alla staði. Arnbjörg og Víkingur giftu sig í Lágafellskirkju og héldu svo svaka partý í Félagsgarði í Kjósinni.
Mikið sungið og mikil gleði sem maður mátti auðvitað búast við enda mjög söngelskt fólk og stuðboltar 🙂
Svo fengu brúðhjónin svoddan snilldarhugmynd með brúðartertuna. Fengu nokkrar vinkonur (ehem yourstruly þar á meðal) til að baka cupcakes og það kom svona líka stórskemmtilega út!! Eva Mjöll bakaði svo líka auka stærri köku sem er þarna efst með Strumpunum sem svona “aðal” köku 🙂