Við fjölskyldan skelltum okkur í sumarbústað í Húsafelli um síðustu helgi. Ferlega notalegt að stinga aðeins af úr bænum og klippa á umhverfið.
Við fengum fínan bústað á vegum SFR og eiginlega má segja að þetta sé einn sá fínasti sem ég hef fariðí á þeirra vegum, þarna var allt til alls, nóg pláss og bara gaman!
Potturinn var vel nýttur í stjörnuskoðanir á kvöldin af okkur skötuhjúunum, krakkarnir kíktu aðeins í pottinn á föstudeginum og fannst það æði!
Ég gæti vel hugsað mér að fara þangað aftur og vera lengur í þetta sinn vorum við í 3 nætur.