Auðvitað var bolludagurinn haldinn “hátíðlegur” í H14 🙂
Oliver kom heim allur útataður í glassúri eftir bollurnar í kaffitímanum á Ólátagarði en það stoppaði hann auðvitað ekki og fékk hann sér eina eða tvær í forrétt 🙂
Ásu fannst þetta auðvitað líka svolítið spennandi EN var aðeins penni í þessu, en fyrsta bollan var meira og minna borðuð í smábútum og puttarnir notaðir vel til að ná örugglega öllum rjómanum úr bollunni… frekar sætt 🙂