ég fékk æskuvinkonurnar í heimsókn í gærkvöldi… að vanda var einhverju OFURHOLLU og góðu snarað fram úr ermunum…
Fékk e-n tíma í haust uppskrift að köku sem ég barasta varð að prufa og OMG hún er yndislega dásamlega syndsamlega góð!! Ekta svona “saumaklúbbs”kaka… lyktin var ó svo góð og græðgin í okkur vinkonunnum var ó svo mikil að ég náði ekki myndatöku… það var 1 pínu oggu ponsu lítill biti eftir… spurning um að mynda hann áður en hann hverfur…
fílakaramellur er lykilorðið í þessari köku… ohmy þarf að finna annað tækifæri fyrr en síðar til að sulla þessari saman… og það skemmtilega er að hún er ekkert flókin! bara góð!