Ekki alveg eitthvað sem ég er tilbúin til að velja sjálf á diskinn minn en engu að síður finnst mér voða gaman að skella mér á mannfögnuði þar sem ég veit að ég mun hitta hresst og skemmtilegt fólk þó svo að svona “gúrme” matur sé á borðum 🙂
Það var ss Þorrablót hjá SHS sl föstudag og við Leifur ákváðum að skella okkur aðeins út til tilbreytingar 🙂
Rússasögur, harðfiskur og hinar ýmsu tegundir af Þorrabjór auk smakks af Campari voru sennilegast topppunktar kvöldsins.
Fyrir okkur gikkina var boðið upp á dýrindis lambakjöt og Hreindýraragú en svo var flott úrval af allskonar “gúrmé” mat fyrir hina 🙂