Ég fór með Lilju vinkonu á skreytingarnámskeið í Blómaval í gærkvöldi. Hélt reyndar að þetta væri meira námskeið en sýning á vörum frá þeim en samt flott að fá hugmyndir að allskonar skreytingum og hvað er hægt að nota í skraut 🙂
Næsta skref er bara að plata Leif í fjárveitingu í Blómaval – EÐA EKKI ég er ekki alveg á leiðinni að fara að kaupa skraut í eina blómaskreytingu fyrir ca 20þús! eins og áætlað var á eina skreytinguna í gærkvöldi.
Þetta var samt flott, ein þarna er SNILLI í að pakka inn gjöfum! og önnur býr til geðveika vendi og Kallinn vá hann bjó til massaflotta kertaskreytingu *haha*
Fullt af flottu dóti 🙂