Léleg mynd but so what!
Við byrjuðum að föndra við jólakonfektið í gær… alltaf jafn snyrtilegt verk en samt gaman – það er líka svo gaman að geta sagt að við höfum föndrað þetta 🙂
Ætlum að gera eitthvað smá meira.. ég er búin að vera að skoða konfektuppskriftir öðruhvoru í haust og búin að bæta þónokkrum inn á uppskriftirnar hér á kjánaprikinu 😉
Hrikalega eru þið dugleg. Þetta lítur vel út.
Oh, þetta er svo gaman 🙂 Við vinkonurnar fórum á konfektnámskeið um daginn svo nú er ég komin með fullt af hugmyndum af nýjum molum 🙂
Takk fyrir það Maggi! 🙂
Eva: já ég fór á svipað námskeið fyrir jólin ’08. Lærði að “steypa” þá. Annars þá er þetta svo einfallt þegar maður kemst upp á lagið með þetta.
🙂
já, ég lærði nú svosem ekkert nýtt, nema nýjar gerðir af fyllingum. Hef gert konfekt með mömmu frá því ég var krakki, en verð alltaf að prufa nýjar gerðir af og til 😉