Æskuvinkonurnar skelltu sér í leikhús á laugardaginn eða amk 4/5 af okkur 😉
Fórum semsagt að sjá Buddy Holly og skemmtum okkur ágætlega þar. Við Sirrý vorum reyndar sammála um að Veðurguðinn gjörsamlega týndist þar sem við fylgdumst næstum því bara með Jóhanni G og Björgvini Franz. Þeir fóru algerlega á kostum þarna uppi á sviðinu 🙂
Stelpan sem var í hlutverki Aretha Franklin – VÁ þvílík rödd! hún náði henni algerlega!!!
Felix Bergsson átti líka þónokkra góða punkta 🙂