Við skötuhjúin smelltum okkur í bíó í fyrrakvöld. Ekkert merkilegt svosem en við vorum víst búin að ákveða að sjá þessa mynd á meðan hún hét enn “Bone deep“.
Við semsagt hittum svo á þegar við vorum í LA að ganga inn í tökur á mynd og þá hét hún semsagt Bone Deep og átti að koma út ári síðar en þá tók einn aðalleikarinn upp á því að fara illa með konuna sína og útgáfunni því frestað svo að það myndi ekki skaða myndina… eða eitthvað álíka. Allavegana! ágætis mynd þarna á ferðinni en ekkert mikið meira en það. Hefði alveg verið til í að sjá hana bara á DVD eða eitthvað en samt sú staðreynd að hafa fylgst með tökum á atriði varð eiginlega til þess að við URÐUM að sjá hana í bíó 🙂
Við vorum reyndar búin að búa okkur undir það að þetta tiltekna atriði hefði verið klippt út eða væri bara rétt myndbrot EN viti menn *haha* þetta var eitt af stæðstu úti atriðum myndarinnar!!! M.a.s smelltum við nokkrum myndum af á meðan við fylgdumst með þessu og héldum að þetta væri auðvitað bara einhver statisti í búningi en NEI þetta var víst einn af aðalleikurunum!!!
Gaurinn þarna í löggubúningnum er semsagt einn af aðalleikurum myndarinnar og
þetta atriði frekar stórt 🙂 gaman að þessu!