ég get svo svarið það mér finnst ég vera fótalaus… doðatilfinning og brauðfætur er það eina sem kemst í hausnum á mér. Þetta er samt bara undanfari… undanfari hvers? ég er nokkuð örugg með að vera með hellings strengi í fótleggjunum þegar líður á daginn.
Tíminn í morgun var nefnilega ekki “venjulegur” heldur hennti hún okkur öllum inn í spinningtíma! OMG ég viðurkenni það alveg að mér þykir ekki gaman að hjóla með bakið á manneskjunni fyrir framan mig það eina sem ég sé… mér finnst gaman að hjóla úti og sjá umhverfið breytast., þetta er svosem ekki neinn venjulegur “hjólatúr” þarna inni…