… það sem er svo sérstakt við að panta af netinu eitthvað sem maður sér aðeins á mynd er einmitt það að maður hefur bara séð hlutinn á mynd.
Í raun og veru veit maður ekkert hvað maður er að fá í hendurnar.
Ég var að fá pakka… alla leið frá Hong Kong! búin að bíða spennt eftir að fá þetta í hendurnar og hlakka mikið til að föndra úr þessu. Sumt er stærra en ég hélt, annað minna og enn annað ALLT ÖÐRUVÍSI en það er bara svona 😉 maður er bara að kaupa eftir mynd.
Hvað var svo verið að panta svona spennandi?
ég þarf eiginlega bara að sýna þér það við tækifæri 😉