Við fjölskyldan kíktum í göngutúr seinnipartinn á föstudaginn… aðeins að sjá hvernig Ásu þætti að fara í snjóþotu… henni virtist líka þetta ágætlega, hún kvartaði amk ekki fyrr en við vorum eiginlega komin að bílnum aftur.
Oliver fannst þessi snjóþotuferð alveg æðisleg. Hann var líka svo spenntur yfir nýju snjóþotunni sem hann fékk í jólagjöf enda er það “stórustráka”. Hann fékk líka að fara í nokkrar salibunur niður brekku sem var nú ekki lítið gaman.. sérstaklega eftir að hann fann “stökkbrettið” sem krakkar höfðu gert þar fyrr um daginn 🙂
1 thought on “Snjóþotuferð í Laugardalnum”
Comments are closed.
krúsídúllan – frábær mynd 🙂