Ég fór með Oliver og Ásu Júlíu í myndatöku um miðjan nóvember.
Svaka leynimakk í gangi og í raun voru það bara foreldrar mínir + Sirrý vinkona sem vissu af þessu þar sem ég hafði hugsað mér að gefa Leifi afrakstur myndatökunnar í jólagjöf í formi blurbbókar – fór reyndar svo að ömmur&afar + systkini Leifs fengu öll myndir úr myndatökunni líka 😉 og svo fékk Leifur líka 2 myndir af okkur 3 saman til að hafa á skrifstofunni.
Ég fór til stráks sem er að “leika sér” að taka myndir og er hann með sitt eigið stúdíó niðrá Hverfisgötu.
Oliver skemmti sér alveg konunglega í myndatökunni þrátt fyrir að vera að hitta Tomasz í fyrsta sinn. Margar myndanna eru alveg stórkostlegar og aðrar bara fallegar. Ég er ekki frá því að myndin hér til hliðar sé amk uppáhaldsmyndin mín af þeim saman – svo á ég barasta erfitt með að velja úr myndum af þeim einum og sér 🙂