Ég ákvað í haust eftir að ég heyrði Lilju vinkonu tala um hversu hrifin Sóley Svana væri af Hello Kitty að prjóna húfu á þá litlu sem ég hafði rekist á inni á Ravelry vefnum. Oliver og Sóley Svana eru nefnilega “jólavinir” og gefa hvort öðru alltaf litlar jólagjafir 🙂
Þetta er frekar einföld húfa, hvít og svo eru prjónuð eyru og saumuð á sem og slaufa og svo auðvitað saumað í augu, nef og veiðihár 🙂 ég kaus að nota 2fallt Kambgarn í húfuna og merkti hana svo með upphafsstöfunum hennar í hnakkann. Vonandi passaði hún og daman sátt (Olli passaði amk í hana ;))
_____
Viðbót 25.des
Heyrði í Lilju í hádeginu og viti menn húfan sló í gegn hjá þeirri stuttu og smellpassaði 🙂